Einstaklingsráðgjöf
Fyrir íþróttafólk sem vill vinna markvisst með hugarfar, einbeitingu, sjálfstraust, mótlæti og markmið.
Frammistöðusálfræði
Helgi Héðinsson, sálfræðingur og ráðgjafi í frammistöðusálfræði.
Þjónusta
Fyrir íþróttafólk sem vill vinna markvisst með hugarfar, einbeitingu, sjálfstraust, mótlæti og markmið.
Ráðgjöf og fræðsla fyrir leikmenn og þjálfara um liðsheild, samskipti, hlutverk og frammistöðu undir álagi. Samstarfið getur verið stakur fyrirlestur eða regluleg vinna yfir tímabilið.
Fyrir lið, félög, hópa og vinnustaði. Innihald sniðið að hópnum og þeim sálfræðilegu þáttum frammistöðu sem skipta mestu máli.
Um frammistöðusálfræði
Geta ein og sér dugar ekki alltaf á keppnisdegi. Frammistaðan ræðst líka af því hvernig þú tekst á við pressuna, heldur einbeitingu og bregst við þegar hlutirnir fara ekki eins og þú ætlaðir.
Ég vinn með þá þætti sem hægt er að æfa: undirbúning, einbeitingu, sjálfstraust, ákvarðanatöku undir álagi, viðbrögð við mótlæti og endurheimt.
„Helgi hefur hjálpað liðinu okkar mikið andlega. Við höfum lært margt sem gagnast okkur í fimleikum en líka bara fyrir lífið. Að hugsa eingöngu um hluti sem við getum stjórnað, annað hjálpar ekkert. Á fundunum hjá Helga minnti hann okkur á hluti sem gáfu okkur extra sjálfstraust og trú á að maður væri með hlutina á hreinu. Lang best var að fara á fund og svo beint á æfingu. Við verðum að eilífu þakklátar fyrir alla tímana sem við höfum fengið, takk!!!“
„Ég kynntist Helga fyrir nokkrum árum þegar hann aðstoðaði mig og mitt lið á erfiðum tíma á miðju tímabili. Helgi var með ótrúlega góða nærveru og náði strax til allra leikmanna. Nálgun hans á verkefnið var mjög fagleg en á sama tíma persónuleg og augljóslega af mikilli umhyggjusemi. Hann hjálpaði okkur á svo margan hátt og með einföldum og skýrum verkefnum fann maður hvernig hópurinn varð sterkari og einbeittari í átt að sameiginlegu markmiði. Ég persónulega lærði gríðarlega mikið og hef sagt allar götur síðan að ég vildi óska þess að ég hefði hitt Helga fyrr á mínum ferli. Vinnan með honum gerði mig að bæði sterkari leikmanni og sterkari einstaklingi.“
Um mig
Ég er löggiltur sálfræðingur með yfir 12 ára reynslu af því að vinna með íþróttafólki, liðum og þjálfurum að því að bæta frammistöðu.
Ég vinn með sálfræðilega þætti sem hafa bein áhrif á frammistöðu, m.a. fókus, sjálfstraust, mótlæti, samskipti og liðsheild. Ég legg áherslu á markvissa nálgun sem nýtist í raunverulegum aðstæðum – á æfingum, í keppni og í daglegu starfi.
Hafðu samband ef þú vilt skoða ráðgjöf, fræðslu eða samstarf.